FERÐATILHÖGUN
Áskil mér rétt til breytinga á ferðinni ef ástæða er til
1.dagur. Flogið til Frankfurt. Gist á flugvallarhóteli þar vegna þess hve tenging er erfið við Jemen þann dag.
2. dagur. 6.maí
Morgunverður. Út á flugvöll um ellefuleytið fh og leggjum af stað með jórdanska flugfélaginu Royal Jordanian kl 14 Millilendum í Amman kl. 20,20 og áfram til til Sanaa, höfuðborgar Jemens. Við lendum þar um 3 leytið um nóttina skv jemenskum tíma. Fulltrúi Universal ferðaskrifstofunnar tekur á móti okkur og gengið frá vegabréfsáritunum. Síðan rakleitt inn í borg og á Hótel Sheba sem er mjög got hotel og vel í sveit sett í miðborginni í Sanaa.
3.dagur 7.maí
Menn hvíla sig vel eftir ferðina og fá sér morgunverð og síðan tökum við öllu rólega og erum á röltinu saman.
Varla er um það deilt að Sanaa er ævaforn borg og sagt að Sem, sonur Nóa hafi stofnað hana. Honum fannst landkostir góðir og reisti sér bú við rætur Ngum fjalla og gaf staðnum nafnið Madinat Sem- Semborg- Ásamt Damaskus í Sýrlandi er Sanaa efalítið með elstu borgum sem enn eru í byggð á sínum forna stað. Hún stendur uppi á hásléttu og enn hærri fjöll blasa við í allar áttir. Jemen var aldrei hertekið að fullu af Tyrkjum á tímum Ottomanveldisins og ættbálkakúltúr er sterkari þar en í öðrum Arabalöndum. Margir telja að arabísk þjóðarhyggja hafi orðið til í Sanaa.
Þennan dag skoðum við borgarmúrana um gömlu borgina sem eru undir verndarvæng UNESCO og hafa verið gerðir upp og tekist vel til, kíkjum á markaðinn og mætti hugsa sér að líta inn á Nýlistasafnið í gömlu borginni. Virðum fyrir okkur þessi einstöku hús og dást má að því hvað UNESCO hefur tekist vel að gera upp múrana umhverfis gömlu borgina. Haft er fyrir satt að þeir hafi upprunalega verið reistir af Túransja sem var bróðir Saladins sigursæla sem vann Jerúsalem úr höndum krossfaranna.
Kvöldverður
Gisting á Sheba
4.dagur 8,maí
Morgunverður
Heimsækjum YERO miðstöðina þar sem við styðjum 133 börn og 27 konur á fullorðinsfræðslu og saumanámskeiði. Síðan til Thula, frægs þorps um 45 mín. Akstur frá Sanaa. Þar hittum við væntanlega stúlkuna Fatimu sem er upphafið að sjóðnum okkar. Gist á Sheba
5.dagur 9.maí
Morgunverður
Heils dags skoðunarferð til fjallabæjanna Hajjara og Manakha og farið um fagurt landslag og vegurinn vindur sig upp snarbrattar hlíðar og við sjáum þorp og bæi nánast hanga utan í fjallaveggjum. Í Manakha borðum við hádegisverð
og horfum við á innfædda sýna hina hefðbundnu Bara’a dansa.
Gist á Sheba
6.dagur 10.maí
Morgunverður
Síðan er haldið til flugvallarins og fljúgum til Múkalla í suðaustri að morgni. Þaðan liggur svo leiðin yfir merkur og sanda Leiðin er einstaklega tilkomumikil og tignarlegt að sjá þegar dalirnir opnast fyrir augum okkar. Til Sejjun og borðum og gistum á fallegu hóteli og sérstæðu sem heitir Hawta Palace.
7.dagur 11.maí
Morgunverður.
Gott að fá sér sundsprett í lauginni við hótelið. Erum í Sejun þennan dag. Skoðum nágrannabyggðir, en Sejun er í Wadi Hawdramat sem er víðastur dala í Jemen.
Við skoðum líka stórar og fagrar hallir og miklar moskur og alls staðar er litskrúðugt mannlíf. Síðdegis til Sjibam, en sá bær er einn af mörgum stöðum í Jemen sem er á Heimsminjaskrá UNESCO og er oft kallaður Manhattan eyðimerkurinnar. Við borðum kvöldverð og gistum á Al Howta Palace
8. dagur 12.maí
Morgunverður
Farið flugleiðis frá Sejjun til Sanaa.
9. dagur 13.maí
Morgunverður
Hálfs dags ferð til Wadi Dhaar þar sem höll síðasta imamsins stendur uppi á ofurháum kletti. Höllin hefur nú verið breytt í safn
Þegar við komum aftur til Sanaa er m.a. farið að Ali Abdullah SAleh, forsetamoskunni ofl. Sömuleiðis ferð á þjóðminjasafnið
10.dagur 14.maí
Frjáls dagur
Borðum kveðjukvöldverð tímanlega því
11.dag aðfararnótt 15.maí
Um nóttina til flugvallar og haldið til Amman í Jórdaníu.
Við komuna tekur jórdanski fulltúrinn á móti okkur og gengið frá áritunum og keyrt síðan rakleiðis til Petra. Menn hvílast eftir ferðina. Síðdegis smáskoðun um Litlu Petru. Gist á Petra Palace.
12.dagur 16.maí
Morgunverður
Við verðum fram eftir degi í Petru og skoðum þessa ógleymanlegu rósrauðu borg “ jafngömul tímanum” eins og einn ferðalangur lýsti henni. Háir hamraveggirnir hylja hana enda var hún týnd um aldir þótt rekja megi sögu hennar til Nabatea en hún var höfuðborg þeirra. Þetta er hreinasti ævintýraheimur. Dalurinn myndaðist við náttúruhamfarir fyrir milljónum ára og þá þeyttust roðalitaðar klettaslettur hátt í loft upp og mynduðu umgerð hennar. Hún var nýlega kjörin eitt af sjö undrum veraldar. Eftir gönguna i Petra gistum við aftur á Petra Palace og borðum þar
13.dagur 17.maí
Keyrt til Amman eftir morgunverð. Komið við á Nebofjalli og í Madaba ef tími leyfir. Í Amman er gist á Jerusalem hóteli sem er gott 4ra stjörnu hótel. Borðum þar.
14.dagur 18.maí
Morgunverður.
Til flugvallar klukkan 9 og heimleiðis höldum við með Royal Jordanian eða upp úr ellefu f.h.
Við lendum í London kl. 14.45 að staðartíma og síðan er bið í London til kl. 21.10 að við fljúgum heim með FI 453 og komum heim kl.23,10.
Þetta verður spennandi ferð sem ég hygg að allir muni njóta vel með forvitni og jákvæðan hug að leiðarljósi.
Innifalið:
Flug, skattar
Gisting (miðað við tvo í herbergi)
Gisting á flugvallarhóteli í Frankfort (tveggja manna herb)og morgunverður
Morgunverður og kvöldverður alla dagana
Allar skoðunarferðir sem upp eru taldar í áætlun
Flug innan Jemens
Íslensk fararstjórn
Vatn/te í ferðum í Jemen
Tips til burðarmanna á flugvöllum, hótelum og veitingastöðum
Ekki innifalið
Drykkir, áfengir sem óáfengir.
Hádegisverðir
Tips til jemensku og jórdönsku fararstjóra og bílstjóra 180 dollarar. Þá upphæð innheimti ég og geri upp við þá.
Upplýsingar á jemen@simnet.is
og í símum 55 14017 og 897 6117